Don't panic

Það er ótrúlegt að fylgjast með þeim atburðum sem gerast allt í kringum okkur í kjölfar kreppunnar.  Við íslendingar hljótum að virðast auðveld bráð þar sem Bretar, Hollendingar og ýmsar þjóðir ESB ráðast harkalega á okkur þrátt fyrir að engan veginn sé ljóst að íslenskur almenningur eigi að bera ábyrgð á bankabrölti fárra aðila í öðrum löndum.  Í þessari veiku stöðu þarf að fara varlega.  Ljóst er að ef IMF ætlar að kúga okkur til þess að kyssa vöndinn, þá mun ESB ekki síður gera það í krafti stærðar sinnar og yfirburða.  Ætla Íslendingar að panikera einmitt nú, þegar samningsstaða okkar er svona veik?  Við þurfum að skoða alla kosti og hætta evru/ESB-tali um stundarsakir - það vita allir að við erum ekki einu sinni ESB-tæk skv. Maastricht-skilyrðunum.  Við þurfum að styrkja innviði okkar innan frá, ekki utan frá.  Við þurfum að berjast fyrir réttindum okkar og láta ekki Breta vaða yfir okkur á skítugum nýlendustígvélunum.  Við eigum að fara að ráði Douglas Adams: "Don't panic" og "keep a stiff upper lip".
mbl.is Bretar segjast styðja lán IMF til Íslands
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hörður Einarsson

Þetta segir okkur að við höfum ekkert í ESB að gera, nær væri að taka kanadískan dollar, bara ekki evrópskan gjaldmiðil, nú eru svíar komnir í hóp með bretum, af öllum.

Hörður Einarsson, 11.11.2008 kl. 00:18

2 Smámynd: Obi Wan Kenobi

Þetta er góður punktur, þótt norska krónan hafi verið freistandi - ef það hefði þá verið möguleiki.

Obi Wan Kenobi, 11.11.2008 kl. 19:53

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband